Þeir sjálfboðaliðar sem koma til Íslands á vegum AUS eru á aldrinum 18-30 ára og eru komnir hingað til að kynnast ólíkri menningu og samfélagi en þeir þekkja, öðlast persónulega reynslu sem er ómetanleg, læra nýtt tungumál og kynnast betur sjálfum sér ogöðlast sjálfstæði með því að búa að heiman um tíma. Fyrir aðra er löngunin til að hjálpa öðrum og vinna gegn fordómum, meginhvatinn. Fyrir marga er þetta tími til að prófa nýja hluti áður en þeir snúa sér að námi og ævistarfi. En yfirleitt er það sambland af öllu framangreindu sem hvetur fólk til að gerast sjálfboðaliðar.
Ungmennin sem AUS tekur á móti vinna að verkefnum sem stuðla að almannaheill og eru ekki rekin í hagnaðarskyni. Þjónustusviðið er afar breitt því verkefnin geta veriðá sviði félagsmála, við umhverfis- og menningarmál, að málum tengdum friði eða félagslegu réttlæti, vinna með öldruðum eða fötluðum, eða með minnihlutahópum, heimilislausum eða flóttamönnum svo dæmi séu tekin.
AUS tekur á móti hópi sjálfboðaliða í september og mars á hverju ári og dvelja sjálfboðaliðarnir ýmist í 6 eða 12 mánuði. Oftast er tekið á móti 15-30 ungmennum en hóparnir eru misstórir eftir ár frá ári. Það myndast skemmtilegur alþjóðlegur andi í hópnum þar sem fólk kemur hvaðanæva úr heiminum.
Öllum sjálfboðaliðum er skylt að mæta á þær þrjár ráðstefnur sem AUS heldur á hverju ári og fá þeir ferðakostnaðinn endurgreiddann. Ef sjálfboðaliði sækir ekki ráðstefnu okkar, án viðunandi skýringar, er hann þar með búinn að segja sig úr AUS og þarf í framhaldi af því að yfirgefa landið. Allir sjálfboðliðar fá tungumálkennslu og þjálfun sem er hluti af sjálfboðaliðaþjónustunni






